Miðvikudaginn 25. júní 2025 fór fram afhending íþróttastyrkja fyrir yngri en 18 ára iðkendur aðildarfélaga Íþróttabandalags Hafnarfjarðar (ÍBH) með athöfn í Álverinu í Straumsvík.
Rannveig Rist forstjóri Rio Tinto á Íslandi, Valdimar Víðisson bæjarstjórinn í Hafnarfirði og Hrafnkell Marinósson formaður ÍBH afhentu styrkina.
Einnig var undirritaður nýr samningur sem gildir fyrir árin 2025-2027 á milli Íþróttabandalagsins í Hafnarfirði, Rio Tinto og Hafnarfjarðarbæjar. Rio Tinto og Hafnarfjarðarbær greiða 12 milljónir króna árið 2025 hvor aðili inn í samstarfið til stuðnings íþróttum barna í Hafnarfirði. Úthlutanir styrkja eru í júní annars vegar og hins vegar í desember út frá umsóknum félaga og reglum samningsins.
Samtals var verið að úthluta 13,2 milljónum króna í fyrri úthlutun ársins úr sjóðnum eða 55% vegna iðkendafjölda sem æfir reglulega í félögunum, þ.e. a.m.k. 2 sinnum í viku og fjóra mánuði yfir árið. Árið 2024 var sótt um stuðning vegna 5419 barna og árið 2025 var sótt um stuðning fyrir 5631 börn, fjölgun um 212 börn milli ára. Óskað var eftir umsóknum frá aðildarfélögum ÍBH og sóttu 12 félög um stuðning úr sjóðnum, en þau voru 13 2024.
Eftirtalin félög fengu stuðning út frá samningi og umsóknum:
Fimleikafélag Hafnarfjarðar kr. 4.346.084.
Knattspyrnufélagið Haukar kr. 3.251.359.
Fimleikafélagið Björk kr. 1.861.268.
Brettafélag Hafnarfjarðar kr. 1.261.161.
Sundfélag Hafnarfjarðar kr. 860.309.
Dansíþróttafélag Hafnarfjarðar kr. 534.470.
Badmintonfélag Hafnarfjarðar kr. 489.931.
Golfklúbburinn Keilir kr. 311.774.
Hestamannafélagið Sörli kr. 187.533.
Bogfimifélagið Hrói Höttur kr. 46.883.
Blakfélag Hafnarfjarðar kr. 25.786.
Íþróttafélagið Fjörður kr. 23.442.
Samtals kr. 13.200.000.
Myndirnar er frá úthlutuninni af fulltrúum íþróttafélaga og frá undirritun samningsins.
