Stjórn ber ábyrgð á því að rekstur íþróttabandalagsins sé í eðlilegum farvegi og í samræmi við þær skuldbindingar sem íþróttabandalagið hefur gengist undir. Að ákveða fyrirkomulag á daglegum rekstri bandalagsins og ráða framkvæmdastjóra sem annast daglegan rekstur bandalagsins auk þess að ráða aðra starfsmenn eftir því sem þörf er á. Að hafa stöðugt og ítarlegt eftirlit með öllum rekstri bandalagsins og sjá um að skipulag þess og starfsemi sé jafnan í réttu og góðu horfi. Að sjá til þess að bókhald bandalagsins sé fært í samræmi við lög og venjur. Að annast um að nægilegt eftirlit sé haft með meðferð fjármunum bandalagsins og að meðferð eigna bandalagsins sé með tryggilegum hætti. Að koma fram fyrir hönd bandalagsins fyrir dómstólum og stjórnvöldum. Að skera úr ágreiningi, sem upp kann að koma innan bandalagsins. Að ákveða hver eða hverjir skuli skuldbinda bandalagið.
Stjórn ÍBH skal sjá um allar framkvæmdir bandalagsins og vinna að málum þess sem felast
meðal annars í eftirfarandi:
a. Vinna að sameiginlegum fjármálum, koma styrkbeiðnum á framfæri, varðveita og skipta á
milli aðildarfélaga því fé sem til þeirra hefur verið veitt sameiginlega.
b. Að hafa forystu aðildarfélaga í sameiginlegum félagsmálum og vera fulltrúi aðildarfélaga á
sameiginlegum vettvangi utan lögsögu ÍBH.
c. Að annast samskipti um íþróttamál við bæjaryfirvöld, þ.m.t. varðandi fjárframlög til
rekstrar, styrkveitingar til einstakra verkefna, uppbyggingu íþróttamannvirkja o.s.frv.
d. Að stuðla að uppbyggingu og endurbótum á sameiginlegum íþróttamannvirkjum, og sjá um
rekstur og viðhald þeirra, ef ekki er öðruvísi kveðið á um þau.
e. Að annast skipulagningu og úthlutanir á tímum í íþróttamannvirkjum til aðildarfélaga.
f. Að annast íþróttaleg sérmál og hagsmuni sérgreinar, ef með þarf, ef sérráð fyrir viðkomandi íþróttagrein er ekki starfandi samkvæmt 8. kafla laga ÍSÍ.
g. Að gangast fyrir stofnun sérráða ef aðildarfélög óska þess.
h. Að vera æðsti aðili varðandi skipulagningu héraðsmóta og hafa úrskurðarvald um hlutgengi þátttakenda í mótum á vegum ÍBH.
i. Að vera umsagnaraðili varðandi íþróttamál, íþróttamannvirki o.s.frv.
j. Að staðfesta lög aðildarfélaga og fylgjast með því að starfsemi aðildarfélaganna fari fram samkvæmt gildandi lögum þeirra, lögum ÍBH, lögum ÍSÍ og íþróttalögum. Vanræki aðildarfélag að halda aðalfund á tilsettum tíma skal stjórn ÍBH, ef þörf krefur, boða til fundarins og sjá um framkvæmd hans.
k. Að annast skýrslugerðir um íþróttamál innan Hafnarfjarðar, og kalla eftir ársskýrslum og endurskoðuðum reikningum aðildarfélaga.
l. Að fjalla um íþróttir eftir því sem stjórn bandalagsins telur þörf á.
Stjórninni er heimilt að skipa nefndir innan eða utan sinna vébanda, til að sjá um málefni bandalagsins. Formaður skal kalla saman stjórnarfund a.m.k. einu sinni í mánuði. Að öðru leyti setur stjórnin sér sjálf starfsreglur. Stjórnarfundir eru lögmætir, ef meirihluti stjórnarinnar mætir og fundur hefur verið boðaður samkvæmt starfsreglum. Atkvæði formanns ræður úrslitum, ef atkvæði falla jöfn.
(Úr lögum ÍBH).
Hlutverk formanns:
Formaður ÍBH er kosinn á þingi bandalagsins til tveggja ára í senn. Hann boðar til stjórnarfundar og kemur fram fyrir hönd bandalagsins á opinberum vettvangi. Formaður situr fundi Íþrótta- og tómstundanefndar Hafnarfjarðarbæjar, varamaður formanns á þeim fundum er framkvæmdastjóri bandalagsins / verkefnastjóri bandalagsins. Er virkur í vinnunefndum stjórnar ÍBH samkvæmt samþykktum stjórnar ÍBH.
Hlutverk varaformanns:
Er kosinn á fyrsta fundi nýrrar stjórnar. Hann er staðgengill formanns í forföllum hans. Er formaður Afrekssjóðs ÍBH. Er virkur í vinnunefndum stjórnar ÍBH samkvæmt samþykktum stjórnar ÍBH.
Hlutverk gjaldkera:
Er kosinn á fyrsta fundi nýrrar stjórnar. Skipuleggur fjárhagsáætlun til þriggja ára í senn í samvinnu við framkvæmdastjóra bandalagnsins sem lögð er fyrir þing bandalagsins á tveggja ára fresti. Gjaldkeri er prókúruhafi reikninga ÍBH og Afrekssjóðs ÍBH ásamt framkvæmdastjóra bandalagsins sem sér um daglegan rekstur og bókhald ÍBH og Afrekssjóðs ÍBH. Gjaldkeri ÍBH er einnig gjaldkeri Afrekssjóðs ÍBH. Gjaldkeri ÍBH vinnur árlega fjárhagsáætlun fyrir ÍBH og Afrekssjóð ÍBH í samvinnu við framkvæmdastjóra bandalagsins sem þarfnast samþykktar bæjarfélagsins vegna fjárlagagerðar sveitarfélagsins. Er virkur í vinnunefndum stjórnar ÍBH samkvæmt samþykktum stjórnar ÍBH.
Hlutverk ritara:
Er kosinn á fyrsta fundi nýrrar stjórnar. Er vararitari á stjórnarfundum ÍBH í forföllum framkvæmdastjóra ÍBH / verkefnastjóra ÍBH. Er virkur í vinnunefndum stjórnar ÍBH samkvæmt samþykktum stjórnar ÍBH.
Hlutverk meðstjórnenda:
Eru kosnir á fyrsta fundi nýrrar stjórnar. Eru virkir í vinnunefndum stjórnar ÍBH samkvæmt samþykktum stjórnar ÍBH.