Tímar í útleigu
Íþróttabandalag Hafnarfjarðar leigir út tíma í íþróttahúsi Víðistaðaskóla (stærð 16 x 27m), íþróttahúsi Setbergsskóla (stærð 13,5 x 24m) og íþróttahúsi Hraunvallaskóla (stærð 13 x 25m) í vetur fyrir almenningshópa. Leigutímabil er frá september til desember og frá janúar til maí. Skjalið er uppfært um leið og einhver breyting verður á.
Lausir tímar til leigu frá 1. september 2026:
Íþróttahús Setbergsskóla:
Mán kl. 20.00-21.00.
Mán kl. 21.00-22.00.
Mið kl. 21.00-22.00.
Fim kl. 21.00-22.00.
Íþróttahús Hraunvallaskóla:
Mán kl. 18.00-19.00.
Mán kl. 19.00-20.00.
Þri kl. 18.00-19.00.
Þri kl. 19.00-20.00.
Mið kl. 21.00-22.00.
Fim kl. 18.00-19.00.
Fim kl. 19.00-20.00.
Fim kl. 21.00-22.00.
Fös kl. 18.00-19.00.
Fös kl. 21.00-22.00.
Íþróttahús Víðistaðaskóla:
Mið kl. 20.00-21.00.
Fim kl. 21.00-22.00.
Hafið samband við skrifstofu ÍBH ef þið viljið leigja einhvern af þessum tímum í netfangið ibh@hafnarfjordur.is
Tímabilið er 1. september – 11. desember 2026, í íþróttahúsi Víðistaðaskóla, 1. september – 17. desember 2026 íþróttahúsi Setbergsskóla og 1. september – 18. desember 2026 íþróttahúsi Hraunvallaskóla.
Hver tími kostar kr. 4.200 í íþh Hraunvallaskóla og íþh Setbergsskóla, kr. 4.000 í íþh Víðistaðaskóla og er allt tímabilið greitt í einu til ÍBH þegar skrifstofa ÍBH sendir ábyrgðaraðila reikning fyrir leigunni. Leigan er greidd fyrirfram.