January 9, 2026

Dansíþróttafélag Hafnarfjarðar 30 ára

Dansíþróttafélag Hafnarfjarðar (DÍH) hélt upp á 30 ára afmælið í desember 2025 með glæsibrag í Sjónarhól í Kaplakrika. Hrafnkell Marinósson formaður ÍBH færði félaginu blómvönd, áritaðann glergrip og fjárupphæð að gjöf í tilefni afmælisins. Auður Haraldsdóttir framkvæmdastjóri / þjálfari DÍH og Atli Már Sigurðsson formaður DÍH veittu gjöfunum viðtöku fyrir hönd félagsins. Félagið var stofnað í nóvember 1995 og hét Nýi dansklúbburinn og hafði fyrst aðstöðu við Reykjavíkurveg í Hafnarfirði. Dansíþróttin fékk viðurkenningu sem íþróttagrein hjá ÍSÍ á Íþróttaþingi ÍSÍ 1995 og sótti félagið um aðild að ÍBH í apríl 1996 og var samþykkt. Nafni félagsins var síðan breytt árið 1998 í Dansíþróttafélag Hafnarfjarðar. Félagið var fyrst dansíþróttafélaga til að gerast aðili að ÍSÍ og hefur að mörgu leyti verið frumkvöðull fyrir dansinn í íþróttahreyfingunni. Félagið hefur dafnað vel í þessi 30 ár og haldið úti sterku dansmóti sem heitir Lotto Open og hefur það verið haldið í íþróttahúsinu við Strandgötu. Í dag á félagið fjöldann allan af frábærum dönsurum sem m.a. taka þátt í mótum út um allan heim. Félagið er með æfingaaðstöðu í félagssal í íþróttamiðstöðinni Björk og í félagssalnum Sjónarhóli í Kaplakrika, en leitað er að varanlegri aðstöðu fyrir félagið og vonandi tekst það á næstu mánuðum. ÍBH óskar félaginu innilega til hamingju með afmælið og frábært íþróttastarf.