April 24, 2026

Fulltrúaráðsfundur ÍBH var haldinn 16. apríl 2026

Vor fulltrúaráðsfundur ÍBH var haldinn í félagsheimili Golfklúbbsins Keilis. Á dagskránni voru áhugaverð erindi og samtal við aðildarfélögin um stöðuna hjá þeim. Hrafnkell Marinósson formaður ÍBH setti fundinn og var fundarstjóri á honum. Tinna Rós Steinsdóttir íþróttafulltrúi Hafnarfjarðarbæjar var með erindi um greiningu frístundastyrkja í Hafnarfirði 2025 og nýtt kerfi frístundastyrkja Hafnarfjarðarbæjar. Janus Guðlaugsson PhD-íþrótta- og heilsufræðingur var með erindi um heilsuefling í Hafnarafirði – ÍBH og aðildarfélög. Fulltrúar félaga greindu frá starfinu í sínu félagi. Að lokum var liðurinn önnur mál, undir honum tóku eftirtaldir til máls, Árni Rúnar Þorvaldsson bæjarfulltrúi frá Samfylkingu, Orri Björnsson bæjarfulltrúi frá Sjálfstæðisflokknum, Pálmey frá Sundfélagi Hafnarfjarðar, Tinna Rós íþróttafulltrúi Hafnarfjarðarbæjar og Hilmar framkvæmdastjóri Fimleikafélagsins Björk, síðan var boðið upp á veitingar og spjall. 37 fulltrúar tóku þátt í fundinum, auk gesta. Myndirnar eru af fundinum.