Fimleikafélagið Björk verður 75 ára 1. júlí 2026. Laugardaginn 6. júní 2026 var haldin glæsileg afmælishátíð í hátíðarsal Flensborgarskólans. Veislustjóri var Hildur Vilhelmsdóttir. Ávörp gesta fluttu Willum Þór Þórsson forseti ÍSÍ, Arnfríður Kristín Arnardóttir varaformaður ÍBH og Árni Rúnar Þorvaldsson Samfylkingunni. Framkvæmdastjóri Björk Hilmar Ingimundarson og formaður Björk Einar Páll Matthiesen kynntu nýtt afmælismyndband. Hlín Benediktsdóttir fráfarandi formaður Björk veitti heiðursviðurkenningar til fjölda Bjarkarfólks. Myndirnar eru frá hátíðinni






