
Þriðjudaginn 30. desember 2025 var Íþrótta- og viðurkenningarhátíð Hafnarfjarðarbæjar haldin í Íþróttahúsinu við Strandgötu, á henni fór fram afhending íþróttastyrkja fyrir yngri en 18 ára iðkendur aðildarfélaga Íþróttabandalags Hafnarfjarðar (ÍBH).
Rannveig Rist forstjóri Rio Tinto á Íslandi og Hrafnkell Marinósson formaður ÍBH afhentu fulltrúum aðildarfélaga ÍBH styrkina. Þetta ár var sérstakt að því leytinu til að Rannveig afhenti styrkina í síðasta skipti og flutti Hrafnkell formaður ÍBH stutt ávarp þar sem henni og aðilum innan fyrirtækisins var þakkað fyrir frábæra samvinnu og stuðning undanfarin 25 ár við íþróttahreyfinguna í Hafnarfirði.

Samningur er í gildi fyrir árin 2025 – 2027 á milli Íþróttabandalagsins í Hafnarfirði, Rio Tinto og Hafnarfjarðarbæjar. Rio Tinto og Hafnarfjarðarbær greiddu 12 milljónir króna hvor aðili inn í samstarfið til stuðnings íþróttum barna og unglinga í Hafnarfirði, samtals 24 milljónir króna árið 2025. Hvatagreiðslur fyrir gæðaviðurkenninguna Fyrirmyndarfélag ÍSÍ hófust árið 2023.
Samtals var verið að úthluta 10,8 milljónum króna í seinni úthlutun ársins úr sjóðnum eða 45% vegna þjálfaramenntunar og gæðaviðurkenningarinnar Fyrirmyndarfélag ÍSÍ. Óskað var eftir umsóknum frá aðildarfélögum ÍBH og sóttu 11 félög um stuðning úr sjóðnum. Eftirtalin félög fengu stuðning út frá samningi og umsóknum um þjálfaramenntun:
Fimleikafélag Hafnarfjarðar kr. 3.456.615.
Knattspyrnufélagið Haukar kr. 1.797.440.
Sundfélag Hafnarfjarðar kr. 1.566.999.
Badmintonfélag Hafnarfjarðar kr. 1.121.479.
Fimleikafélagið Björk kr. 967.852.
Hestamannafélagið Sörli kr. 921.764.
Golfklúbburinn Keilir kr. 307.255
Dansíþróttafélag Hafnarfjarðar kr. 291.892.
Brettafélag Hafnarfjarðar kr. 184.353.
Bogfimifélagið Hrói Höttur kr. 153.627.
Hnefaleikafélag Hafnarfjarðar kr. 30.725.
Samtals kr. 10.800.000.

Myndir Hafnarfjarðarbær.