
Hnefaleikafélag Hafnarfjarðar (HFH) fagnar 20 ára afmæli um þessar mundir og að tilefni þess færði ÍBH félaginu blómvönd, áritaðann glergrip og fjárhæð samkvæmt reglugerð ÍBH um afmælisgjafir til aðildarfélaga. Félagið hóf starfsemi vorið 2005. Í nóvember 2005 fékk félagið bráðabirgða aðstöðu í Kaplakrika til að byrja með. HFH var fyrst íslenskra hnefaleikafélaga til að senda keppendur á stórmót erlendis sem voru þau Arndís Birta Sigursteinsdóttir og Stefán Breiðfjörð Gunnlaugsson sem kepptu á Evrópumeistaramótum árið 2006. Fljótlega eftir þing ÍBH á vormánuðum 2007 fékk félagið aðstöðu að Dalshrauni 10 og fór þaðan á haustmánuðum á þessu ári í glæsilega nýja aðstöðu að Suðurhellu 5. Íþróttabandalag Hafnarfjarðar óskar félaginu innilega til hamingju með afmælið, nýja aðstöðu og vonar að vel takist til við að efla starfið enn frekar. Myndirnar eru af nýrri aðstöðu félagsins og frá vinstri af formanni félagsins Gunnari Guðjónssyni, Hrafnkatli Marinóssyni formanni ÍBH, Daða Ástþórssyni þjálfara HFH og Arnóri Má Grímssyni þjálfara HFH.




