June 8, 2026

Rio Tinto og Hafnarfjarðarbær úthluta íþróttastyrkjum til barna

Miðvikudaginn 3. júní 2026 fór fram afhending íþróttastyrkja fyrir yngri en 18 ára iðkendur aðildarfélaga Íþróttabandalags Hafnarfjarðar (ÍBH) með athöfn í Álverinu í Straumsvík.

Sunna Björg Helgadóttir forstjóri Rio Tinto á Íslandi, Tinna Rós Steinsdóttir íþróttafulltrúi Hafnarfjarðar og Magnús Gunnarsson stjórnarmaður ÍBH, fyrrverandi bæjarstjóri, formaður / framkvæmdastjóri Knattspyrnufélagsins Hauka afhentu styrkina.

Samningur er í gildi fyrir árin 2025-2027 á milli Íþróttabandalagsins í Hafnarfirði, Rio Tinto og Hafnarfjarðarbæjar. Rio Tinto og Hafnarfjarðarbær greiða 12 milljónir króna árið 2026 hvor aðili inn í samstarfið til stuðnings íþróttum barna í Hafnarfirði. Úthlutanir styrkja eru í júní annars vegar og hins vegar í desember út frá umsóknum félaga og reglum samningsins.

Samtals var verið að úthluta 13,2 milljónum króna í fyrri úthlutun ársins úr sjóðnum eða 55% vegna iðkendafjölda sem æfir reglulega í félögunum, þ.e. a.m.k. 2 sinnum í viku og fjóra mánuði yfir árið.

Árið 2025 var sótt um stuðning vegna 5631 barns og árið 2026 var sótt um stuðning fyrir 5652 börn, fjölgun um 21 barn milli ára. Óskað var eftir umsóknum frá aðildarfélögum ÍBH og sóttu 15 félög um stuðning úr sjóðnum, en þau voru 12 árið 2025.

Eftirtalin félög fengu stuðning út frá samningi og umsóknum:

Fimleikafélag Hafnarfjarðar kr. 4.311.253.

Knattspyrnufélagið Haukar kr. 3.827.813.

Fimleikafélagið Björk kr. 1.819.321.

Sundfélag Hafnarfjarðar kr. 803.397.

Brettafélag Hafnarfjarðar kr. 719.321.

Badmintonfélag Hafnarfjarðar kr. 569.851.

Golfklúbburinn Keilir kr. 411.040.

Hestamannafélagið Sörli kr. 214.862.

Dansíþróttafélag Hafnarfjarðar kr. 163.482.

Hnefaleikafélag Hafnarfjarðar kr. 130.786.

Akstursíþróttafélag Hafnarfjarðar kr. 60.722.

Blakfélag Hafnarfjarðar kr. 58.386.

Siglingaklúbburinn Þytur kr. 46.709.

Bogfimifélagið Hrói Höttur kr. 42.038.

Íþróttafélagið Fjörður kr. 21.019.

Samtals kr. 13.200.000.

Myndirnar er frá úthlutuninni af fulltrúum íþróttafélaga og frá afhendingu styrkjanna.