Rio Tinto og Hafnarfjarðarbær afhentu íþróttastyrki

Úthlutun íþróttastyrkja fyrir yngri en 18 ára iðkendur aðildarfélaga ÍBH fór fram þriðjudaginn 4. júní sl. samkvæmt samningi milli Íþróttabandalagsins í Hafnarfirði (ÍBH), Rio Tinto og Hafnarfjarðarbæjar. Athöfn fór fram í höfuðstöðvum Rio Tinto á Íslandi í Straumsvík þar sem fulltrúar félaganna tóku á móti styrkjunum. Myndirnar eru frá athöfninni. Samningur hefur verið í gildi frá árinu 2001 á milli Íþróttabandalagsins í Hafnarfirði, Rio Tinto og Hafnarfjarðarbæjar. Samningar hafa verið gerðir til þriggja ára í senn og er nýjasti samningurinn frá árinu 2017 og lýkur honum í árslok 2019. Rio Tinto og Hafnarfjarðarbær greiða 10 milljónir á ári hvor aðili inn í samstarfið til stuðnings íþróttum barna og unglinga í Hafnarfirði. Í dag er verið að úthluta fyrri úthlutun ársins úr sjóðnum eða 60% vegna iðkendafjölda sem æfir reglulega í félögunum og jafnréttishvata, samtals 12 milljónir. Óskað var eftir umsóknum frá aðildarfélögum ÍBH í aprílmánuði og sóttu 12 félög um stuðning úr sjóðnum. Eftirtalin félög fengu stuðning út frá samningi og umsóknum:

Fimleikafélag Hafnarfjarðar kr. 3.200.396.

Fimleikafélagið Björk kr. 2.347.683.

Knattspyrnufélagið Haukar kr. 1.934.026.

Brettafélag Hafnarfjarðar kr. 772.885.

Sundfélag Hafnarfjarðar kr. 761.999.

Badmintonfélag Hafnarfjarðar kr. 553.356.

Hestamannafélagið Sörli kr. 404.585.

Dansíþróttafélag Hafnarfjarðar kr. 368.300.

Golfklúbburinn Keilir kr. 302.985.

Siglingaklúbburinn Þytur kr. 232.228.

Íþróttafélagið Fjörður kr. 76.200.

Hnefaleikafélag Hafnarfjarðar kr. 45.357.

Samtals kr. 11.000.000.

 

Jafnréttishvataverðlaun 2019 hlutu Brettafélag Hafnarfjarðar kr. 500.000 fyrir mestu prósentufjölgun þess kyns sem hallaði á (stúlkur) og Fimleikafélagið Björk kr. 500.000 fyrir mestu iðkendafjölgun þess kyns sem hallaði á (strákar). Samtals kr. 1.000.000.