Göngum í skólann

Nú styttist í skólar landsins hefji göngu sína að nýju eftir sumarleyfi. Það sama á við um verkefnið Göngum í skólann (www.iwalktoschool.org) en það verður sett í þrettánda sinn miðvikudaginn 4. september næstkomandi og lýkur formlega með alþjóðlega Göngum í skólann deginum miðvikudaginn 2. október. Markmið verkefnisins er að hvetja börn til að tileinka sér virkan ferðamáta í og úr skóla og auka færni þeirra til að ferðast á öruggan hátt í umferðinni.

Á hverju ári taka milljónir barna í yfir 40 löndum víðs vegar um heiminn þátt í Göngum í skólann með einum eða öðrum hætti. Hér á landi hefur þátttakan vaxið jafnt og þétt og fyrsta árið voru þátttökuskólarnir 26 en alls 73 skólar skráðu sig til leiks árið 2018.

Óskum við nú eftir liðsinni ykkar til að hvetja alla skóla á ykkar svæði til þátttöku og auðvelda foreldrum og börnum að velja virkan ferðamáta. Það getið þið m.a. gert með því að nýta heimasíðu og Facebooksíðu sveitarfélagsins til að segja frá verkefninu og hvetja skólastjórnendur til að taka þátt. Einnig með því að hvetja sveitafélögin á ykkar svæði til að huga því að göngu- og hjólreiðastígar séu öruggir og greiðir með því að huga að hreinsun, viðhaldi og lýsingu. Jafnframt er nauðsynlegt að stuðla að því að nærumhverfi skólanna sé öruggt eftir því sem við á t.d. með því að takmarka bílaumferð við skóla, huga að merkingum við t.d. gangbrautir, tryggja öryggi vegfarenda við umferðarþungar götur og hafa gangbrautaverði.

Á heimasíðu Göngum í skólann www.gongumiskolann.is eru allar nánari upplýsingar um verkefnið en þar má m.a. finna skemmtilegar útfærslur nokkurra skóla á Íslandi á verkefninu. Einnig er hægt að hafa samband við undirritaða.

Með kveðju, fyrir hönd Göngum í skólann verkefnisins

Kær kveðja

Hrönn Guðmundsdóttir

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands / The National Olympic and Sports Association of Iceland

Sviðsstjóri Almenningsíþróttasviðs

(+354) 514 4000 / (+354) 692 9025