Tímar til leigu

Íþróttabandalag Hafnarfjarðar leigir út tíma í íþróttahúsi Víðistaðaskóla (stærð 16 x 27m), íþróttahúsi Setbergsskóla (stærð 13,5 x 24m) og íþróttahúsi Hraunvallaskóla (stærð 13 x 25m) í vetur fyrir almenningshópa. Leigutímabil er frá september til desember og frá janúar til maí. Skjalið er uppfært um leið og einhver breyting verður á.

Eftirfarandi tímar eru lausir fyrir almenningshópa 23. ágúst 2019:

Íþróttahús Setbergsskóla:

mán kl. 17.00-18.00

mán kl. 18.00-19.00

mán kl. 20.00-21.00

mið kl. 19.00-20.00

Íþróttahús Hraunvallaskóla:

mán kl. 21.00-22.00

þri kl. 19.00-20.00

þri kl. 20.00-21.00

mið kl. 21.00-22.00

fös kl. 19.00-20.00

fös kl. 20.00-21.00

fös kl. 21.00-22.00

Íþróttahús Víðistaðaskóla:

þri. kl. 20.00-21.00

 

Hafið samband við skrifstofu ÍBH ef þið viljið leigja einhvern af þessum tímum í netfangið ibh@hafnarfjordur.is

Tímabilið er 2. september til 20. desember 2019 (íþh Hraunvallaskóla og íþh Setbergsskóla). 2. september til 13. desember 2019 (íþh Víðistaðaskóla).

 

Hver tími kostar kr. 2.800 í íþh Hraunvallaskóla og íþh Setbergsskóla, kr. 2.600 í íþh Víðistaðaskóla og er allt tímabilið greitt í einu til ÍBH þegar skrifstofa ÍBH sendir ábyrgðaraðila reikning fyrir leigunni. Leigan er greidd fyrirfram.