Bogfimisambands Íslands stofnað

Stofnþing Bogfimisambands Íslands (BFSÍ) var haldið í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal sunnudaginn 1. desember 2019. Með stofnun þessa nýja sérsambands eru sérsambönd ÍSÍ orðin 33 talsins. Íþróttin er nú stunduð í tíu íþróttafélögum innan vébanda níu íþróttahéraða / íþróttabandalaga, þar með talið í Íþróttabandalagi Hafnarfjarðar í aðildarfélaginu Bogfimifélaginu Hróa Hetti.

Um langt skeið hefur verið starfandi bogfiminefnd innan ÍSÍ og hefur hún haft umsjón með útbreiðslu og uppbyggingu íþróttarinnar á Íslandi undir leiðsögn ÍSÍ. Íþróttin hefur vaxið hratt á landsvísu og því hefur verið unnið að stofnun sérsambands um hana.

Ólafur Gíslason var kjörinn fyrsti formaður sambandsins. Í stjórn BFSÍ voru kjörin til fjögurra ára þau Guðmundur Örn Guðjónsson varaformaður og Ásdís Lilja Hafþórsdóttir ritari og Albert Ólafsson gjaldkeri og Haraldur Gústafsson meðstjórnandi til tveggja ára.
Varamenn stjórnar eru Astrid Daxböck, Alfreð Birgisson og Kelea Quinn.
Þingið samþykkti lög sambandsins. Drög að afreksstefnu BFSÍ voru kynnt. Þingforseti var Hafsteinn Pálsson, 2. varaforseti ÍSÍ.

Bogfimi er ólympísk íþróttagrein. Ísland hefur átt þátttakendur á alþjóðlegum mótum, svo sem Evrópuleikunum árið 2015 og 2019 í bogfimi og hafa keppendur í bogfimi átt góðu gengi að fagna á Smáþjóðaleikunum í San Marínó 2017. Myndin með fréttinni er af fulltrúum stofnþingsins og starfsfólki/stjórnarfólki ÍSÍ sem héldu stofnþingið.