Áskorun íþróttahéraða

Íþróttahreyfingin fagnar þeim tilslökunum sem gerðar eru í nýrri reglugerð um íþróttastarf en lýsir þungum áhyggjum af unglingunum á framhaldsskólaaldri.  Þessi hópur virðist hafa gleymst þegar kemur að útfærslu á takmörkunum hverju sinni.

Raddir unga fólksins okkar eru því miður of fáar og þegar við getum ekki hvatt þau til íþróttaiðkunar í jafn langan tíma og raun ber vitni þá höfum við miklar áhyggjur af brottfalli þeirra sem myndi auka líkur á frávikshegðun með tilheyrandi vandamálum.

Íþróttahéruðin hvetja stjórnvöld til að endurskoða afstöðu sína til þessa viðkvæma hóps í þeim afléttingum sem nú þegar eru samþykktar og hleypa fyrrnefndum aldurshópi inn í íþrótta- og æskulýðsstarf á ný, með og án snertinga og með þeim fjöldatakmörkunum sem gilda fyrir íþróttastarf.

Íþróttakveðja,

Héraðassambandið Hrafnaflóki Héraðssamband Bolungarvíkur Héraðssambandið Skarphéðinn
Héraðssamband Snæfellsness og Hnappadalssýslu Héraðssamband Strandamanna Héraðssamband Vestfirðinga Héraðssamband Þingeyinga Íþróttabandalag Akraness Íþróttabandalag Akureyrar Íþróttabandalag Hafnarfjarðar Íþróttabandalag Reykjavíkur Íþróttabandalag Reykjanesbæjar Íþróttabandalag Vestmannaeyja Íþróttabandalag Suðurnesja Ungmennasamband Dalamanna og Norður-Breiðfirðinga Ungmenna- og íþróttasamband Austurlands
Ungmenna- og íþróttasamband Fjallabyggðar Ungmennasamband Borgarfjarðar Ungmennasamband Eyjafjarðar Ungmennasamband Kjalarnesþings Ungmennasamband Austur-Húnvetninga Ungmennasambandið Úlfljótur Ungmennasamband Vestur-Húnvetninga Ungmennasamband Vestur-Skaftafellssýslu