Hafnarfjarðarbær og Rio Tinto veita íþróttastyrki

Þriðjudaginn 29. desember sl. fór fram úthlutun íþróttastyrkja fyrir yngri en 18 ára iðkendur aðildarfélaga ÍBH samkvæmt samningi milli Íþróttabandalagsins í Hafnarfirði (ÍBH), Rio Tinto og Hafnarfjarðarbæjar. Vegna samkomutakmarkanna var úthlutunin kynnt á rafrænni Íþrótta- og viðurkenningarhátíð Hafnarfjarðarbæjar og hafa félögin fengið framlögin greidd. Samningur hefur verið í gildi frá árinu 2001 á milli Íþróttabandalagsins í Hafnarfirði, Rio Tinto og Hafnarfjarðarbæjar. Núverandi samningur gildir út árið 2020. Rio Tinto og Hafnarfjarðarbær greiða 10 milljónir á ári hvor aðili inn í samstarfið til stuðnings íþróttum barna og unglinga í Hafnarfirði. Í dag er verið að úthluta seinni úthlutun ársins úr sjóðnum eða 40% vegna þjálfaramenntunar og námskráa, samtals 8 milljónum króna. Óskað var eftir umsóknum frá aðildarfélögum ÍBH í nóvembermánuði og sóttu 12 félög um stuðning úr sjóðnum. Eftirtalin félög fengu stuðning út frá samningi og umsóknum:

Fimleikafélag Hafnarfjarðar kr. 2.368.588.

Knattspyrnufélagið Haukar kr. 1.843.164.

Fimleikafélagið Björk kr. 769.379.

Sundfélag Hafnarfjarðar kr. 744.520.

Golfklúbburinn Keilir kr. 576.384.

Badmintonfélag Hafnarfjarðar kr. 534.350.

Hestamannafélagið Sörli kr. 520.339.

Íþróttafélagið Fjörður kr. 247.119.

Dansíþróttafélag Hafnarfjarðar kr. 240.113.

Hnefaleikafélag Hafnarfjarðar kr. 128.023.

Brettafélag Hafnarfjarðar kr. 21.017.

Bogfimifélagið Hrói Höttur kr. 7.006.

Samtals kr. 8.000.000.

Myndirnar eru frá fyrri úthlutunum úr safni ÍBH.