Rio Tinto og Hafnarfjarðarbær afhenda íþróttastyrki

Afhending íþróttastyrkja fór fram mánudaginn 7. júní sl. fyrir yngri en 18 ára iðkendur aðildarfélaga ÍBH. Athöfnin fór að þessu sinni fram í Álfafelli Íþróttahúsinu við Strandgötu.

Birna Pála Kristinsdóttir fulltrúi fyrirtækisins Rio Tinto, Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjórinn í Hafnarfirði og Hrafnkell Marinósson formaður ÍBH undirrituðu samning fyrir árið 2021 og afhendu fulltrúum aðildarfélaga ÍBH styrkina. Myndirnar voru teknar við athöfnina.

Samningur er í gildi fyrir árið 2021 á milli Íþróttabandalagsins í Hafnarfirði, Rio Tinto og Hafnarfjarðarbæjar. Rio Tinto og Hafnarfjarðarbær greiða 10 milljónir króna á ári hvor aðili inn í samstarfið til stuðnings íþróttum barna og unglinga í Hafnarfirði.

Samtals var verið að úthluta 12 milljónum króna í fyrri úthlutun ársins úr sjóðnum eða 60% vegna iðkendafjölda sem æfir reglulega í félögunum og jafnréttishvata. Óskað var eftir umsóknum frá aðildarfélögum ÍBH í aprílmánuði og sóttu 13 félög um stuðning úr sjóðnum. Eftirtalin félög fengu stuðning út frá samningi og umsóknum:

Fimleikafélag Hafnarfjarðar kr. 4.078.763.

Knattspyrnufélagið Haukar kr. 2.395.622.

Fimleikafélagið Björk kr. 1.981.043.

Sundfélag Hafnarfjarðar kr. 739.788.

Brettafélag Hafnarfjarðar kr. 513.879.

Badmintonfélag Hafnarfjarðar kr. 491.537.

Dansíþróttafélag Hafnarfjarðar kr. 362.446.

Golfklúbburinn Keilir kr. 143.986.

Hestamannafélagið Sörli kr. 111.713.

Hnefaleikafélag Hafnarfjarðar kr. 71.993.

Íþróttafélagið Fjörður kr. 54.615.

Bogfimifélagið Hrói Höttur kr. 32.273.

Tennisfélag Hafnarfjarðar kr. 22.343.

Samtals kr. 11.000.000.

Jafnréttishvataverðlaun 2021 hlutu Fimleikafélagið Björk kr. 500.000 fyrir mestu iðkendafjölgun þess kyns sem hallaði á (drengir) og Fimleikafélag Hafnarfjarðar kr. 500.000 fyrir mestu prósentuhækkun þess kyns sem hallaði á (stúlkur).