Fyrri úthlutun íþróttastyrkja 2022 frá Rio Tinto og Hafnarfjarðarbæ

Afhending íþróttastyrkja fyrir yngri en 18 ára iðkendur aðildarfélaga Íþróttabandalags Hafnarfjarðar (ÍBH) fór fram fimmtudaginn 9. júní 2022 með athöfn í Álverinu í Straumsvík.

Rannveig Rist forstjóri Rio Tinto á Íslandi, Hrafnkell Marinósson formaður ÍBH og Kristinn Andersen forseti bæjarstjórnar fyrir hönd Hafnarfjarðarbæjar afhentu styrkina.

Samningur er í gildi fyrir árin 2022-2024 á milli Íþróttabandalagsins í Hafnarfirði, Rio Tinto og Hafnarfjarðarbæjar. Rio Tinto og Hafnarfjarðarbær greiða 10 milljónir króna á ári hvor aðili inn í samstarfið til stuðnings íþróttum barna og unglinga í Hafnarfirði.

Samtals var verið að úthluta 12 milljónum króna í fyrri úthlutun ársins úr sjóðnum eða 60% vegna iðkendafjölda sem æfir reglulega í félögunum og jafnréttisviðurkenningar. Óskað var eftir umsóknum frá aðildarfélögum ÍBH í aprílmánuði og sóttu 13 félög um stuðning úr sjóðnum. Eftirtalin félög fengu stuðning út frá samningi og umsóknum:

Fimleikafélag Hafnarfjarðar kr. 4.152.178.

Knattspyrnufélagið Haukar kr. 2.785.699.

Fimleikafélagið Björk kr. 1.596.623.

Sundfélag Hafnarfjarðar kr. 910.986.

Brettafélag Hafnarfjarðar kr. 637.690.

Badmintonfélag Hafnarfjarðar kr. 508.234.

Golfklúbburinn Keilir kr. 364.394.

Dansíþróttafélag Hafnarfjarðar kr. 210.965.

Hestamannafélagið Sörli kr. 179.800.

Blakfélag Hafnarfjarðar kr. 45.549.

Bogfimifélagið Hrói Höttur kr. 38.357.

Tennisfélag Hafnarfjarðar kr. 35.960.

Íþróttafélagið Fjörður kr. 33.563.

Samtals kr. 11.500.000.

Jafnréttisviðurkenning var veitt í fyrsta skipti árið 2022. Sú nýbreyttni var tekin upp að félög þurftu nú að sækja um viðurkenninguna sjálf og skila inn samantekt á stöðu jafnréttismála inn í félaginu eða deildinni. Badmintondeild Badmintonfélags Hafnarfjarðar (BH) sótti um og skilaði góðri samantekt á stöðu jafnréttismála í deildinni að mati nefndar sem fór yfir umsóknir, hlaut deildin kr. 500.000 í styrk vegna góðrar stöðu á jafnréttismálum.

Myndirnar eru frá úthlutuninni.