ÍSÍ bikar 2022

Frjálsíþróttadeild FH hlýtur ÍSÍ bikarinn 2022. Félags- og íþróttaleg uppbygging frá yngri flokkum upp í meistaraflokka hefur verið góð á árinu og boðið hefur verið upp á starf fyrir eldri iðkendur. Deildin fékk flesta Íslandsmeistaratitla í Hafnarfirði á árinu. Meistaraflokkar deildarinnar unnu 11 stigakeppnir af 12 mögulegum á árinu. Deildin átti keppanda, Hilmar Örn Jónsson í úrslitum á Evrópumeistaramóti fullorðinna í sleggjukasti karla á árinu.

Þórey Edda Elísdóttir 1. varaforseti ÍSÍ afhenti Elínu, Val og Hermanni frá frjálsíþróttadeild FH ÍSÍ bikarinn, Arnfríður Kristín Arnardóttir stjórnarmaður ÍBH stýrði athöfninni.