AÍH 20 ára

Akstursíþróttafélag Hafnarfjarðar (AÍH) varð 20 ára 21. október 2022. Í upphafi voru þrjár deildir í félaginu, motocrossdeild, go kartdeild og rallycrossdeild. Driftdeildin bættist síðan seinna við og voru þær þá orðnar fjórar deildarnar í félaginu. Félagið hélt upp á afmælið 12. nóvember 2022 í Reiðhöllinni í Víðidal með léttum veitingum, verðlaunaafhendingum og skemmtiatriðum. ÍBH færði félaginu áletraðann grip, blómvönd og peningagjöf á fyrsta stjórnarfundi félagsins eftir afmælið sem var haldinn fimmtudaginn 16. febrúar 2023. Formaður félagsins er Linda Dögg Jóhannsdóttir. Myndirnar eru úr veislunni (af Facebooksíðu AÍH) og af stjórn félagsins.