Íþróttastyrkjum frá Rio Tinto og Hafnarfjarðarbæ úthlutað

Mánudaginn 5. júní 2023 fór fram afhending íþróttastyrkja fyrir yngri en 18 ára iðkendur aðildarfélaga Íþróttabandalags Hafnarfjarðar (ÍBH) með athöfn í Álverinu í Straumsvík. Rannveig Rist forstjóri Rio Tinto á Íslandi, Hrafnkell Marinósson formaður ÍBH og Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjórinn í Hafnarfirði afhentu styrkina.

Samningur er í gildi fyrir árin 2022-2024 á milli Íþróttabandalagsins í Hafnarfirði, Rio Tinto og Hafnarfjarðarbæjar. Rio Tinto og Hafnarfjarðarbær greiddu 10 milljónir króna árið 2022 hvor aðili inn í samstarfið til stuðnings íþróttum barna og unglinga í Hafnarfirði. Fyrir árin 2023 og 2024 var undirritaður viðauki sem fól í sér hækkun á upphæðinni upp í 22 milljónir króna 2023 og 24 milljónir króna 2024. Fyrirtækið setti inn í viðaukann BUSINESS INTEGRITY og settar voru inn hvatagreiðslur fyrir gæðaviðurkenninguna Fyrirmyndarfélag ÍSÍ.

Samtals var verið að úthluta 12,1 milljónum króna í fyrri úthlutun ársins úr sjóðnum eða 55% vegna iðkendafjölda sem æfir reglulega í félögunum. Óskað var eftir umsóknum frá aðildarfélögum ÍBH og sóttu 12 félög um stuðning úr sjóðnum. Eftirtalin félög fengu stuðning út frá samningi og umsóknum:

Fimleikafélag Hafnarfjarðar kr. 3.764.334.

Knattspyrnufélagið Haukar kr. 2.758.691.

Fimleikafélagið Björk kr. 2.455.756.                                              

Sundfélag Hafnarfjarðar kr. 965.614.

Brettafélag Hafnarfjarðar kr. 598.420.

Badmintonfélag Hafnarfjarðar kr. 494.131.

Dansíþróttafélag Hafnarfjarðar kr. 367.494.

Golfklúbburinn Keilir kr. 302.935.

Hestamannafélagið Sörli kr. 201.129.

Hnefaleikafélag Hafnarfjarðar kr. 114.221.

Tennisfélag Hafnarfjarðar kr. 39.729.

Íþróttafélagið Fjörður kr. 37.246.

Samtals kr. 12.100.000.

Myndirnar eru frá úthlutuninni.