Hafnarfjarðarbær og Rio Tinto úthluta íþróttastyrkjum

Miðvikudaginn 27. desember 2023 fór fram afhending íþróttastyrkja fyrir yngri en 18 ára iðkendur aðildarfélaga Íþróttabandalags Hafnarfjarðar (ÍBH) sen liður í dagskrá árlegrar Íþrótta- og viðurkenningarhátíðar bæjarins í Íþróttahúsinu við Strandgötu.

Bjarni Már Gylfason upplýsingafulltrúi Rio Tinto á Íslandi og Hrafnkell Marinósson formaður ÍBH afhentu styrkina.

Samningur er í gildi fyrir árin 2022-2024 á milli Íþróttabandalagsins í Hafnarfirði, Rio Tinto og Hafnarfjarðarbæjar. Rio Tinto og Hafnarfjarðarbær greiddu 10 milljónir króna árið 2022 hvor aðili inn í samstarfið til stuðnings íþróttum barna og unglinga í Hafnarfirði. Fyrir árin 2023 og 2024 var undirritaður viðauki sem fól í sér hækkun á upphæðinni upp í 22 milljónir króna 2023 og 24 milljónir króna 2024. Fyrirtækið setti inn í viðaukann BUSINESS INTEGRITY og settar voru inn hvatagreiðslur fyrir gæðaviðurkenninguna Fyrirmyndarfélag ÍSÍ.

Samtals var verið að úthluta 9,9 milljónum króna í seinni úthlutun ársins úr sjóðnum eða 45% vegna þjálfaramenntunar og gæðaviðurkenningarinnar Fyrirmyndarfélag ÍSÍ. Óskað var eftir umsóknum frá aðildarfélögum ÍBH og sóttu 13 félög um stuðning úr sjóðnum. Eitt félag, Golfklúbburinn Keilir fékk kr. 450.000 fyrir gæðaviðurkenninguna Fyrirmyndarfélag ÍSÍ og eru önnur aðildarfélög ÍBH og íþróttadeildir þeirra hvött til að stefna að því að fá gæðaviðurkenninguna. Eftirtalin félög fengu stuðning út frá samningi og umsóknum um þjálfaramenntun:

Fimleikafélag Hafnarfjarðar kr. 2.875.597.

Knattspyrnufélagið Haukar kr. 2.153.878.

Golfklúbburinn Keilir kr. 811.933 + 450.000 = 1.261.933.

Sundfélag Hafnarfjarðar kr. 1.217.900.

Hestamannafélagið Sörli kr. 620.227.

Badmintonfélag Hafnarfjarðar kr. 552.566.

Fimleikafélagið Björk kr. 473.628.

Dansíþróttafélag Hafnarfjarðar kr. 293.198.

Íþróttafélagið Fjörður kr. 169.153.                                                  

Brettafélag Hafnarfjarðar kr. 112.768.

Bogfimifélagið Hrói Höttur kr. 112.768.

Blakfélag Hafnarfjarðar kr. 33.831.

Hnefaleikafélag Hafnarfjarðar kr. 22.554.

Samtals kr. 9.900.000.

Myndin sýnir Bjarna Má afhenda fulltrúum íþróttafélaga styrkinn.