Nýtt aðildarfélag að ÍBH Skautafélag Hafnarfjarðar

Stofnfundur Skautafélags Hafnarfjarðar var haldinn þann 11. júní 2024. Viðar Garðarsson var fundarstjóri á fundinum. 39 einstaklingar skráðu sig sem félagsmenn á fundinum. Þórhallur Viðarsson var kosinn fyrsti formaður félagsins og aðrir í stjórn eru, Þóra Guðmundsdóttir, Ellert Þór Arason, Ingólfur Bjarnason og Elvar Freyr Hafsteinsson. Aðildarumsókn félagsins að ÍBH var tekin fyrir á stjórnarfundi ÍBH þann 4. september sl. og samþykkt. Félagið hyggst leggja stund á íshokkí og sendir karla lið til keppni í ár. Æfingaaðstaða félagsins verður fyrst um sinn í Egilshöllinni í Reykjavík.