Pílukastfélag Hafnarfjarðar nýtt aðildarfélag ÍBH
Pílukastfélag Hafnarfjarðar sótti um aðild að ÍBH á haustmánuðum 2024. Aðildarumsóknin var tekin fyrir á stjórnarfundi ÍBH 6. nóvember 2024 og samþykkt.
Félagið var stofnað 7. maí 1998 í félagsmiðstöðinni Vitanum þar sem nú er Bókasafn Hafnarfjarðar, sem tómstundafélag. Endurstofnfundur var árið 2020. Frá samþykktri inntöku inn í Íþróttabandalag Hafnarfjarðar er félagið íþróttafélag. Formaður félagsins er Atli Már Erlingsson og með honum í stjórn eru eftirtaldir, Viktoría Ósk Daðadóttir, Þórunn Lilja Þorsteinsdóttir, Kristinn Geir Pálsson og Gísli Svanur Svansson. Tilgangur félagsins er að iðka, efla og skipuleggja pílukast í Hafnarfirði og nágrenni, ásamt því að stuðla að þróun og bættu aðgengi að íþróttinni. Einnig mun félagið vinna í uppbyggingu á pílukasti fyrir ungmenni á svæðinu. Eins og stendur hefur félagið ekki aðstöðu en verið er að vinna í því að fá hana. Heimasíða félagsins er www.pfh.is. Myndin sýnir Ingibjörgu Magnúsdóttur taka við viðurkenningu fyrir Íslandsmeistaratitil 2024 frá Hafnarfjarðarbæ, Valdimar Víðisson sem tók við sem bæjarstjóri í Hafnarfirði 1. janúar 2025 afhenti henni hana á árlegri íþrótta- og viðurkenningarhátíð Hafnarfjarðarbæjar sem fór fram 27. desember sl.