Velheppnað Felixnámskeið haldið fyrir aðildarfélög ÍBH

Þriðjudaginn 5. apríl sl hélt Óskar Örn Guðbrandsson verkefnisstjóri Felix og tölvumála hjá ÍSÍ námskeið um Felixkerfið, félagakerfi ÍSÍ og UMFÍ fyrir aðildarfélög ÍBH í Íþróttahúsinu við Strandgötu. Sjö aðilar mættu á námskeiðið frá Siglingaklúbbnum Þyt, Íþróttafélaginu Firði, Hnefaleikafélagi Hafnarfjarðar og Hjólreiðafélaginu Bjarti. Auk þess að fara yfir helstu grunnþætti kerfisins kynnti Óskar fyrirhugaðar breytingar á kerfinu sem verða vonandi komnar í notkun fyrir næstu starfsskýrsluskil að ári. Fyrir þá sem þekkja ekki Felixkerfið þá er rétt að birta upplýsingar um kerfið til kynningar þess. Eftirfarandi upplýsingarnar um kerfið eru teknar af heimasíðu ÍSÍ. „Felix er miðlægt tölvukerfi ÍSÍ og Ungmennafélag Íslands (UMFÍ) og heldur utan um íþróttaiðkendur á Íslandi. Kerfið var tekið í notkun árið 2004 og er hannað  af hugbúnaðarfyrirtækinu Idega.

Íþróttafélög innan ÍSÍ og UMFÍ hafa beinan aðgang inn í kerfið í gegnum helstu vafra sem eru á markaðnum s.s. Internet Explorer og Firefox. Kerfið fá sambandsaðilar til notkunar endurgjaldslaust og  nýtist til að halda utan um daglega skráningu þátttakenda í íþróttastarfinu. Þjóðskrá kerfisins er uppfærð mánaðarlega sem auðveldar til muna allt utan um hald. Þá er hægt að halda utan um netföng einstaklinga og senda tölvupóst beint úr kerfinu.

Kerfið býður upp á öfluga aðgangsstýringu sem gerir félögum kleift að aðgangstýra kerfinu. Þannig er t.d. hægt að gefa þjálfurum aðgang til að skrá og uppfæra sína iðkendur og allar breytingar sem verða gerast miðlægt sem tryggir að alltaf er verið að horfa á réttar upplýsingar.

Kerfið er einnig notað til að senda inn árlegar upplýsingar til ÍSÍ en félögum ber að skila fyrir 15. apríl ár hvert inn félagatali, iðkendatali, stjórnar- og nefndarmönnum sem og lykiltölum úr ársreikningum.
 
Þessar upplýsingar eru nauðsýnlegar og á þeim byggir tölfræði íþróttahreyfingarinnar.
 
Þá geta félög, héraðssambönd og sérsambönd sótt sína eigin tölfræði inn í kerfið sem geta m.a. nýst við stefnumótun.”