10,8 milljónir fyrir barna- og unglingastarfið

Þriðjudaginn 7. júní veittu fulltrúar 10 hafnfirskra íþróttafélaga íþróttastyrkjum fyrir 16 ára og yngri móttöku frá Rio Tinto Alcan og Hafnarfjarðarbæ við athöfn í Straumsvík.

Eftirtalin íþróttafélög hlutu styrk:

Fimleikafélag Hafnarfjarðar (FH) samtals kr. 2.809.707, Knattspyrnufélagið Haukar samtals kr. 2.429.191, Fimleikafélagið Björk samtals kr. 2.418.998, Sundfélag Hafnarfjarðar (SH) samtals kr. 740.648, Badmintonfélag Hafnarfjarðar (BH) samtals kr. 349.939, Dansíþróttafélag Hafnarfjarðar (DÍH) samtals kr. 343.144, Hestamannafélagið Sörli samtals kr. 295.580, Golfklúbburinn Keilir samtals kr. 283.689, Hnefaleikafélag Hafnarfjarðar samtals kr. 66.251 og Íþróttafélagið Fjörður samtals kr. 62.853.

Jafnréttishvataverðlaun hlutu Fimleikafélag Hafnarfjarðar fyrir mestu fjölgun iðkenda þess kyns sem hallaði á sem voru stúlkur kr. 500.000 og Sundfélag Hafnarfjarðar fyrir mestu prósentufjölgun þess kyns sem hallaði á sem voru drengir kr. 500.000.

Samningur er í gildi frá árinu 2001 milli Rio Tinto Alcan, ÍBH og Hafnarfjarðarbæjar um stuðning við íþróttastarf 16 ára og yngri iðkenda aðildarfélaga ÍBH. Árið 2014 var hann síðast endurskoðaður og varð heildarstyrktarupphæðin 18 milljónir á ári, með 9 milljón króna framlagi hvors aðila á ári.

Tvær úthlutanir eru á ári. Í vorúthlutun er 60% upphæðarinnar skipt á félögin út frá iðkendafjölda þeirra 16 ára og yngri og í ár er í annað skipti veitt jafnréttishvataverðlaun samkvæmt gildandi samningi, þ.e. þau félög sem fjölga mest annars vegar prósentulega og hins vegar út frá iðkendafjölda því kyni sem hallaði á frá árinu á undan fá sérstaka viðurkenningu. Seinni úthlutun fer fram í desember og er þá verið að greiða 40% af upphæðinni til félaganna út frá námskrám og menntunarstigi þjálfara.

Félögin stefna ávallt að því að auka gæði starfsins og lækka kostnað iðkenda þegar þau hljóta fjárstuðning í formi íþróttastyrkja. Íslenskt samfélag gerir kröfu um vellíðan allra sem koma að íþróttastarfi félaganna. Þjálfarar barna og unglinga gegna lykilhlutverki í félögunum við uppeldis-, forvarnar- og íþróttastarf. Ábyrgð stjórnarfólks er mikil við að finna og ráða þjálfara sem hafa bæði faglega þekkingu á viðkomandi íþrótt og eru góðir í mannlegum samskiptum. Heilbrigð gildi úr samfélaginu eru höfð að leiðarljósi í íþróttastarfinu. Lagður er grunnur að heilbrigðum lífsstíl og einstaklingsmótun fyrir lífstíð. Rannsóknir og greining hafa lagt fyrir kannanir og tekið saman niðurstöður frá árinu 1992 sem hafa m.a. sýnt fram á að skipulagt íþróttastarf skili verðmætari einstaklingum út í samfélagið. Umfangs- og gæðamikið íþróttastarf í sveitarfélögum getur ekki farið fram án stuðnings bæði fyrirtækja og opinberra aðila. Samvinna Hafnarfjarðarbæjar og fyrirtækisins Rio Tinto Alcans um fjárstuðning við íþróttastarf barna og unglinga í hafnfirskum félögum er öllu samfélaginu afar verðmætt. Íþróttahreyfingin í Hafnarfirði þakkar Rio Tinto Alcan á Íslandi hf og Hafnarfjarðarbæ fyrir stuðninginn og farsælt samstarf í gegnum árin.

Myndin með fréttinni sýnir forstjóra Rio Tinto Alcan Rannveigu Rist, bæjarstjórann í Hafnarfirði Harald Líndal Haraldsson, formann ÍBH Hrafnkel Marinósson ásamt fulltrúum aðildarfélaga ÍBH sem veittu styrkjunum viðtöku.