Afreksstyrkur vegna EM kvenna til Sigríðar Hrannar

Afreksmannasjóður ÍBH veitti Sigríði Hrönn Bergþórsdóttur fimleikakonu úr Fimleikafélaginu Björk afreksstyrk að upphæð kr. 150.000 vegna þátttöku á Evrópumóti kvenna í áhaldafimleikum sem fór fram 1. júní sl í Bern í Sviss. Kvennalandsliðið náði afar góðum árangri og hefur aldrei áður endað ofar í keppninni. Liðið varð efst allra Norðurlandaþjóða og endaði í 14. sæti með 150,955 stig. Sigríður keppti í stökki og á gólfi. 3 liðsmenn af 5 fá að keppa á hverju áhaldi. Íþróttabandalag Hafnarfjarðar óskar Sigríði Hrönn til hamingju með glæsilegann árangur. Hópmyndin sýnir kvennalandslið FSÍ í áhaldafimleikum sem tók þátt á EM, Sigríður Hrönn er lengst til hægri á myndinni. Einstaklingsmyndin er af Sigríði Hrönn.