Hanna Rún og Nikita fá afreksstyrk vegna EM í latín dönsum

Nikita Bazev og Hanna Rún Óladóttir Dansíþróttafélagi Hafnarfjarðar tóku þátt í Evrópumeistaramótinu í latín dönsum í flokki fullorðinna sem var haldið í Rimini á Ítalíu 9. júlí 2016. 71 par hóf mótið og dönsuðu þau Hanna Rún og Nikita af miklu öryggi og krafti og enduðu í 16. sæti mótsins sem er mjög góður árangur. Afreksmannasjóður Íþróttabandalags Hafnarfjarðar veitti þeim afreksstyrk til þátttöku á mótinu að upphæð kr. 150.000 á einstakling. Íþróttabandalag Hafnarfjarðar óskar þeim til hamingju með árangurinn. Myndin sýnir parið í danskeppni.