Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ fer fram 18. júní 2017

Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ fer fram í 28. sinn sunnudaginn 18. júní. Hlaupið verður á fjölmörgum stöðum hérlendis sem og erlendis. Markmið Kvennahlaupsins hefur frá upphafi verið að vekja áhuga kvenna á reglulegri hreyfingu.

Nú eru 28 ár liðin frá því að fyrsta Kvennahlaup ÍSÍ fór fram. Hlaupið var haldið 30. júní 1990 í tengslum við Íþróttahátíð ÍSÍ og tóku um 2500 konur þátt í Garðabæ og á sjö stöðum á landsbyggðinni. Lovísa Einarsdóttir íþróttakennari var einn af frumkvöðlum Kvenna-hlaupsins og var hún í lykilhlutverki við stofnun hlaupsins árið 1990 og síðar framkvæmd þess. Í dag er Kvennahlaupið einn útbreiddasti og fjölmennasti íþróttaviðburður sem haldinn er á Íslandi ár hvert.  Um 15.000 konur tóku þátt á 105 stöðum hérlendis sem erlendis í 25 ára afmælishlaupinu 14. júní 2014.

Það sem er svo skemmtilegt við Kvennahlaupið er að þar koma saman konur á öllum aldri. Mjög algengt er að margir ættliðir, vinkonur eða systur fari saman í hlaupið og geri sér jafnvel glaðan dag í tilefni dagsins. Þó svo að hlaupið heiti Kvennahlaup þá eru karlar að sjálfsögðu velkomnir í hlaupið.

Fjölmennustu hlaupin eru í Mosfellsbæ kl.11, Garðabæ kl. 14 og á Akureyri kl. 11. Hægt er að sjá alla hlaupastaði og tímasetningar á kvennahlaup.is og á  Facebook-síðu hlaupsins

Ekki þarf að skrá sig sérstaklega í hlaupið heldur bara að mæta á hlaupastað og kaupa sér bol. 
Þátttökugjald er 1000 kr. fyrir 12 ára og yngri og 2000 kr. fyrir 13 ára og eldri.

Merktu þínar myndir #kvennahlaup á Instagram.

Nánari upplýsingar veitir sviðsstjóri Almenningsíþróttasviðs ÍSÍ

Hrönn Guðmundsdóttir

hronn@isi.is

514-4000