Bætt við Mán, 08/08/2016 - 15:57
Þórdís Eva Steinsdóttir FH tók þátt í heimsmeistaramóti 19 ára og yngri í frjálsíþróttum dagana 19. – 24. júlí 2016. Mótið var haldið í Bydgoszcz í Póllandi og keppti hún í 400m hlaupi. 19. júlí hljóp hún riðlakeppnina og var á tímanum 56,06 sek og endaði í 35. sæti á mótinu. Afreksmannasjóður ÍBH veitti henni afreksstyrk að upphæð kr. 60.000 vegna þátttöku á mótinu. Íþróttabandalag Hafnarfjarðar óskar henni til hamingju með frammistöðuna.
Bætt við Mán, 08/08/2016 - 15:53
Mímir Sigurðsson FH keppti í kringlukasti á Evrópumeistaramóti 16 – 17 ára í frjálsíþróttum sem var haldið 14. – 17. júlí 2016 í Tblisi í Georgíu. Mímir keppti 16. júlí og kastaði hann kringlu sem var 1,5 kg 46,32m og varð í 27. sæti á mótinu. Afreksmannasjóður ÍBH veitti Mími afreksstyrk að upphæð kr. 60.000 vegna þátttöku á mótinu. Íþróttabandalag Hafnarfjarðar óskar honum til hamingju með árangurinn. Myndin sýnir Mími í keppni.
Bætt við Mán, 08/08/2016 - 15:49
Þórdís Eva Steinsdóttir FH keppti í 400m hlaupi á Evrópumeistaramóti 16 – 17 ára í frjálsíþróttum sem fór fram dagana 14. – 17. júlí 2016 í Tblisi í Georgíu. Þórdís Eva hljóp riðlakeppnina 14. júlí á tímanum 56,01 sek, undanriðlana hljóp hún 15. júlí á tímanum 56,0 sek og úrslitahlaupið hljóp hún 16. júlí á tímanum 55,68 sek og endaði í 5. sæti á mótinu sem er stórglæsilegur árangur fyrir stúlku á yngra ári. Afreksmannasjóður ÍBH veitti henni kr.
Bætt við Fös, 08/05/2016 - 16:30
Sindri Guðlaugsson og Sóley Ósk Hilmarsdóttir Dansíþróttafélagi Hafnarfjarðar fóru á heimsmeistaramót ungmenna í standard dönsum sem var haldið 9. júlí 2016 í Kitakyushu í Japan. 62 pör hófu keppni og enduðu Sindri og Sóley Ósk í 48. sæti í keppninni. Afreksmannasjóður Íþróttabandalags Hafnarfjarðar veitti þeim afreksstyrk að upphæð kr. 60.000 á einstakling í verkefnið.
Bætt við Fös, 08/05/2016 - 15:18
Arna Stefanía Guðmundsdóttir frjálsíþróttakona úr FH keppti á Evrópumeistaramótinu í frjálsíþróttum í kvennaflokki sem fór fram dagana 6. – 10. júlí 2016 í Amsterdam í Hollandi. 8. júlí hljóp Arna Stefanía riðlakeppni í 400m grindahlaupi á tímanum 57,14 sek sem var persónuleg bæting hjá henni og Íslandsmet í flokki stúlkna 22 ára. 9. júlí hljóp hún undanúrslit í 400m grindahlaupi á tímanum 57,24 sek og varð í 18. sæti á mótinu.
Bætt við Fös, 08/05/2016 - 14:16
Nikita Bazev og Hanna Rún Óladóttir Dansíþróttafélagi Hafnarfjarðar tóku þátt í Evrópumeistaramótinu í latín dönsum í flokki fullorðinna sem var haldið í Rimini á Ítalíu 9. júlí 2016. 71 par hóf mótið og dönsuðu þau Hanna Rún og Nikita af miklu öryggi og krafti og enduðu í 16. sæti mótsins sem er mjög góður árangur. Afreksmannasjóður Íþróttabandalags Hafnarfjarðar veitti þeim afreksstyrk til þátttöku á mótinu að upphæð kr.
Bætt við Mið, 08/03/2016 - 15:17
19. Unglingalandsmót UMFÍ var haldið um verslunarmannahelgina frá fimmtudeginum 28. júlí til mánudagsins 1. ágúst. Setning mótsins fór fram föstudagskvöldið 29. júlí á íþróttavellinum í Borgarnesi að viðstöddu fjölmenni.
Bætt við Fös, 06/10/2016 - 10:24
Tinna Óðinsdóttir fimleikakona úr Fimleikafélaginu Björk fékk afreksstyrk að upphæð kr. 150.000 vegna þátttöku á Evrópumóti kvenna í áhaldafimleikum sem fór fram 1. júní sl í Bern í Sviss. Kvennalandsliðið náði afar góðum árangri og hefur aldrei áður endað ofar í keppninni. Liðið varð efst allra Norðurlandaþjóða og endaði í 14. sæti með 150,955 stig. Tinna keppti á slá og á gólfi. 3 liðsmenn af 5 fá að keppa á hverju áhaldi.
Bætt við Fös, 06/10/2016 - 10:20
Afreksmannasjóður ÍBH veitti Sigríði Hrönn Bergþórsdóttur fimleikakonu úr Fimleikafélaginu Björk afreksstyrk að upphæð kr. 150.000 vegna þátttöku á Evrópumóti kvenna í áhaldafimleikum sem fór fram 1. júní sl í Bern í Sviss. Kvennalandsliðið náði afar góðum árangri og hefur aldrei áður endað ofar í keppninni. Liðið varð efst allra Norðurlandaþjóða og endaði í 14. sæti með 150,955 stig. Sigríður keppti í stökki og á gólfi.
Bætt við Fim, 06/09/2016 - 15:29
Margrét Lea Kristinsdóttir fimleikakona úr Fimleikafélaginu Björk fær afreksstyrk úr Afreksmannasjóði ÍBH að upphæð kr. 60.000 vegna þátttöku á Evrópumóti unglinga í áhaldafimleikum sem fór fram 1. júní sl í Bern í Sviss. Margrét Lea og liðsfélagar hennar í unglingalandsliði FSÍ stóðu sig vel á mótinu og öðluðust dýrmæta reynslu. Margrét Lea varð næst stigahæst í íslenska liðinu með 46.265 sem gaf henni 57. sætið.